Útgáfa á breyttu rekstrarleyfi Ís 47 ehf. til fiskeldis í Önundarfirði
Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á breyttu leyfi Ís 47 ehf. til sjókvíaeldis í Önundarfirði. Breytingin heimilar eldi á frjóum laxi í Önundarfirði en heimild til eldis á þorski er felld úr leyfinu samhliða breytingunni. Hámarkslífmassi verður óbreyttur, en eldisskilyrði breytast í samræmi við tilkomu frjós lax í rekstrarleyfið. Breytingin felur einnig í sér færslu svæðis frá Ingjaldssandi yfir á Hundsá, þannig að áfram eru einungis tvö eldissvæði í leyfinu.
Athugasemdir bárust frá þremur aðilum á auglýsingatíma tillögunnar og er gerð grein fyrir þeim í greinargerð ásamt viðbrögðum Matvælastofnunar við þeim. Athugasemdirnar eru einnig birtar í hlekk.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu á breyttu rekstrarleyfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.
Ítarefni