Fara í efni

Útburður á hræjum vegna refaveiða

Athygli er vakin á því að sækja þarf um leyfi til Matvælastofnunar til útburðar á hræjum. Sótt er um í þjónustugátt á heimasíðu stofnunarinnar með rafrænum skilríkjum, umsóknareyðublað nr. 2.25.

Jafnframt er athygli vakin á því að útburður á sauðfjárhræjum sem og hræjum af öðrum jórturdýrum er algjörlega bannaður.

Samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma, skulu aukaafurðir dýra sem ekki eru ætlaðar til manneldis, meðhöndlaðar, geymdar, fluttar, unnar eða eytt á þann hátt að ekki valdi hættu á útbreiðslu smitefna eða annarra skaðlegra efna. Þeir sem hyggjast meðhöndla, geyma, flytja eða vinna aukaafurðir dýra sem ekki teljast til úrgangs, skulu sækja um leyfi til Matvælastofnunar áður en starfsemin hefst.

Í gildi er sérstök reglugerð um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis. Þar eru aukaafurðir dýra flokkaðar í þrjá mismunandi áhættuflokka og eru efni í 1. flokki áhættumest.

Í reglugerðinni kemur fram að „sérstök áhættuefni“ teljist vera í 1. flokki. Fyrir liggur að heilir skrokkar af jórturdýrum teljast vera „sérstök áhættuefni“ vegna hættu á útbreiðslu m.a. riðu, en einnig garnaveiki og vöðvasulls og ber því að gæta alveg sérstakrar varúðar við meðhöndlun á þeim.

Í reglugerðinni er einnig fjallað um förgun og notkun efnis í 1. áhættuflokki. Er þar gert ráð fyrir förgun með brennslu að meginstefnu til og skiptir þá ekki máli hvort viðkomandi dýrum er slátrað í sláturhúsi eða heima á bæ, hvað þá ef um er að ræða sjálfdauðar skepnur. Alls ekki er leyfilegt að bera skrokka af þessum dýrum út á víðavang.

Sé ætlunin að leggja út skrokkhluta eða kjöt til þess að egna fyrir ref verður það að vera af öðrum dýrategundum en jórturdýrum og eins og fyrr segir skal sækja um sérstakt leyfi til þess til Matvælastofnunar.


Getum við bætt efni síðunnar?