Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Rifós til fiskeldis á Kópaskeri

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Rifós hf. vegna fiskeldis á landi á Röndinni á Kópaskeri. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 2.700 tonna hámarkslífmassa vegna seiðaeldis á laxi.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 6. nóvember 2023.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?