Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Laxa til fiskeldis að Bakka í Ölfusi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Laxa eignarhaldsfélag ehf. vegna fiskeldis á landi að Bakka í Ölfusi. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 100 tonna hámarkslífmassa vegna klakfisks- og seiðaeldis á laxi og bleikju. Áður var fyrirtækið með rekstrarleyfi (FE-1119) fyrir 20 tonna framleiðslu vegna klakfisks- og seiðaeldis á laxi, og bleikju.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 23. nóvember 2020.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?