Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Landeldis ehf. til fiskeldis í Þorlákshöfn

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Landeldi ehf. vegna fiskeldis að Laxabraut 21 -25 í Þorlákshöfn. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 3.450 tonna hámarkslífmassa vegna seiða -og matfiskeldis á laxi, bleikju og urriða.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum i samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 8. nóvember 2021.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?