Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Landeldis ehf. að Öxnalæk, Ölfusi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Landeldi ehf. vegna fiskeldis á landi að Öxnalæk í Ölfusi. Fyrirtækið hefur keypt eldisstöðina og yfirtekið rekstrarleyfi sem var þar áður. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga, 100 tonna hámarkslífmassi á laxi til seiðaeldis.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 16. september 2020.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?