Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Hafrannsóknarstofnunar til fiskeldis að Stað í Grindavík

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Hafrannsóknarstofnun vegna tilraunaeldis og rannsókna að Stað í Grindavík. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga þar sem hámarkslífmassi miðast við 20 tonn af hinum ýmsu eldistegundum.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 30.11.2020.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?