Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi FISK-Seafood hf. að Hofi í Hjaltadal

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir FISK-Seafood vegna fiskeldis á landi að Hofi í Hjaltadal. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga þar sem hámarkslífmassi miðast við 600 tonn af bleikju til seiðaeldis og matfiskeldis.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. október 2020.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?