Tillaga að rekstrarleyfi Benchmark Genetics Iceland til fiskeldis í Kirkjuvogi við Hafnir
Frétt -
25.02.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Benchmark Genetics Iceland hf. vegna seiðaeldis í Kirkjuvogi við Hafnir. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi með breytingu þar sem hámarkslífmassi miðast við 90 tonn af laxi og hrognkelsum.
Fyrir hefur félagið rekstrarleyfi FE-1096 til 150 tonna áframeldis á laxi, 5 tonnum að bleikju, 4,9 tonnum að þorski og 40 tonnum af hrognkelsum á ári. Við gildistöku nýs leyfis fellur rekstarleyfi FE-1096 niður.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 24. mars 2021.