Fara í efni

Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi Arnarlax til fiskeldis í Patreks- og Tálknafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að breytingu á rekstrarleyfi Arnarlax í Patreks- og Tálknafirði en fyrirtækið er með rekstrarleyfi fyrir 10.700 tonna framleiðslu og 12.200 tonna hámarkslífmassa af laxi í Patreks- og Tálknafirði (FE-1144) sem var gefið út 28. ágúst 2019.

Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi byggir á tilkynningu Arnarlax frá 2020  um breytingu á eldissvæðum og tilkynningu Arnarlax frá 2021 um breytingu á hvíldartíma í Patreks- og Tálknafirði og ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 2021 um breytingu á eldissvæðum og hvíldartíma í Patreks- og Tálknafirði.

Breyting á rekstrarleyfinu heimilar flutning á eldissvæðinu Hlaðseyri á nýtt eldissvæði Vatneyri. Jafnframt er eldissvæðið Eyri stækkað. Eldissvæðið Sandoddi í Patreksfirði og Laugardalur í Tálknafirði verða óbreytt. Hvíldartími eldissvæða verður eftir breytingu að lágmarki 90 dagar í stað 180 daga áður. Hámarkslífmassi rekstrarleyfisins (FE-1144) verður óbreyttur 12.200 tonn. Gildistími rekstrarleyfisins helst óbreyttur.

Eftir breytingar verður Arnarlax áfram með þrjú eldissvæði í Patreksfirði og eitt eldissvæði í Tálknafirði.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar á Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 18. maí 2022.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?