Fara í efni

Synjun á innflutningi notaðrar dráttarvélar staðfest

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið staðfesti nýlega ákvörðun Matvælastofnunar að synja um innflutning á notaðri dráttarvél frá Danmörku. Óheimilt er að flytja til landsins notuð landbúnaðartæki. 

Matvælastofnun getur heimilað innflutning ef sannað þykir að ekki berist smitefni með þeim er valda dýrasjúkdómum. Innflytjandinn hélt því fram að dráttarvélin hefði aldrei verið notuð í landbúnaði heldur einungis við slátt á fótboltavelli erlendis.  Matvælastofnun taldi það ekki sannað auk þess sem vélin væri það ryðguð og illa farin að sótthreinsun væri óframkvæmanleg.

Ráðuneytið féllst á rök Matvælastofnunar og staðfesti synjunina.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?