Fara í efni

Stuðningur við aðlögun að lífrænum framleiðsluháttum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við aðlögun að lífrænum framleiðsluháttum. Matvælastofnun auglýsir eftir umsækjendum vegna stuðnings við aðlögun að lífrænum framleiðsluháttum í samræmi við ákvæði V. kafla reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 1180/2017.

Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. ofangreindrar reglugerðar og hafa byrjað lífræna aðlögun í landbúnaði undir eftirliti faggildrar vottunarstofu og í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara, með síðari breytingum, geta sótt um aðlögunarstuðning.

Skilyrði fyrir stuðningi eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í þeim búgreinum sem við á hverju sinni.

Nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:

  1. Kostnaðaráætlun unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
  2. Afrit af áætlun um aðlögun að lífrænni landbúnaðarframleiðslu, staðfest af faggildri vottunarstofu
  3. Staðfesting faggildrar vottunarstofu um að umsækjandi hafi undirritað samning við hana um reglubundið eftirlit með framleiðslunni samkvæmt reglum um lífræna framleiðslu

Nánari upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl má finna í ofangreindri reglugerð.

Opið er fyrir rafrænar umsóknir í þjónustugátt Matvælastofnunar (umsóknareyðublað nr. 7.21). Umsóknum skal skila inn eigi síðar en 15. maí nk.


Getum við bætt efni síðunnar?