Fara í efni

Strok laxfiska úr landeldisstöð

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun barst tilkynning frá Kaldvík ehf. þriðjudaginn 30. júlí 2024 um óhapp sem leiddi til stroks eldislax við dælingu laxaseiða úr landeldisstöð fyrirtækisins á Röndinni á Kópaskeri yfir í brunnbátinn Ronja Fjord.

Við eftirgrennslan Matvælastofnunar kom í ljós að barki sem notaður er við flutning seiða frá landeldisstöð út í brunnbát hafði farið í sundur á þilfari brunnbátsins Ronju Fjord. Atburðurinn uppgötvaðist kl. 13:47 á sömu stundu og óhappið varð. Lekinn var stöðvaður strax. Ljóst er að allt að 300 sjógönguhæf laxaseiði fóru í sjóinn.

Starfsmenn Kaldvíkur brugðust við samkvæmt viðbragðsáætlun og lögðu út net. Ekkert veiddist í netin eftir 13 tíma.


Getum við bætt efni síðunnar?