Fara í efni

Smáir málmbitar í pasta

Matvælastofnun vill vara neytendur við neyslu á Pastella fresh fettuccine spinach pasta sem Danól ehf. flytur inn vegna aðskotahluta sem geta verið í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðsludagsetningar.

  • Vörumerki: Pastella
  • Vöruheiti: Fresh Fettuccine Spinach
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 15.05.2023 til 01.08.2023
  • Nettómagn: 250 g
  • Framleiðandi: Scandinavian Retail Food.
  • Framleiðsluland: Danmörk
  • Innflutningsfyrirtækið: Danól ehf., Fosshálsi 25, 110 Reykjavík.
  • Dreifing: Bónus um land allt, Hagkaup Skeifunni, Kjörbúðin/Krambúðin Mývatni, Melabúðin.

 

 Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til verslunar gegn endurgreiðslu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?