Fara í efni

Skráning vegna fiskeldis - Kristín Ósk Matthíasdóttir að Þverá í Vatnsfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá Kristínu Ósk Matthíasdóttur með fiskeldi að Þverá í Vatnsfirði. Um er að ræða landeldi á bleikju í kerjum.

Kristín Ósk Matthíasdóttir sótti um skráningu vegna 20 tonna hámarkslífmassa í matfiskeldi á bleikju (Salvelinus alpinus). Umsókn um skráningu var móttekin þann 15. janúar 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni

Staðfesting skráningar Matvælastofnunar - Kristín Ósk Matthíasdóttir

Starfsleyfi Umhverfisstofnunar

Ákvörðun um framlengingu á starfsleyfi - Kristín Ósk Matthíasdóttir


Getum við bætt efni síðunnar?