Fara í efni

Sérfræðingur á sviði inn- og útflutnings

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf á inn- og útflutningsskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík.


Helstu verkefni:

  • Framkvæmd eftirlits á matvælum við inn- og útflutning
  • Vinna að matvælaöryggi í samvinnu við aðra sérfræðinga stofnunarinnar
  • Afgreiðsla leyfisbréfa vegna innflutnings frá evrópska efnahagssvæðinu (EES)
  • Samhæfing landamæraeftirlits við önnur ríki innan EES
  • Útgáfa inn- og útflutningsvottorða eftir því sem við á
  • Eftirlit á landamærastöðvum
  • Umsjón með uppfærslu skráa og skjala á landamærastöðvum
  • Samskipti við sveitarstjórnir, hafnar-,  toll- og  opinber yfirvöld
  • Samskipti við innlendar og erlendar stofnanir sem tengjast inn- og útflutningseftirliti
  • Fylgjast með löggjöf og þróun á sviði inn- og útflutnings í öðrum ríkjum
  • Upplýsinga- og gagnaöflun ásamt skýrslugerð


Menntunar- og hæfniskröfur:


  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla á sviði eftirlits með matvælum innan EES samningsins æskileg
  • Þekking á lögum og reglum EES kostur
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta – enska og eitt norðurlandamál


Nánari upplýsingar um starfið veita Þorvaldur H. Þórðarson tht@mast.is og Hafsteinn Jóh. Hannesson hafsteinn.hannesson@mast.is og í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Sérfræðingur/Inn- og útflutningur” eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 8. október 2008. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar um stofnunina er hægt að nálgast á vefsíðu hennar, www.mast.is.



Getum við bætt efni síðunnar?