Fara í efni

Sérfræðingur á matvælaöryggis- og neytendamálasviði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing á matvælaöryggis- og neytendamálasviði. Um er að ræða fullt starf á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi.


Helstu verkefni:


  • Umsjón með málaflokknum fæðubótarefni

  • Samskipti við neytendur, hagsmunaaðila og eftirlitsaðila
  • Vinna við matvælalöggjöf

  • Samskipti við erlendar stofnanir

  • Ýmis verkefni sem tengjast matvælaöryggi


Menntunar- og hæfniskröfur:


  • Háskólapróf í næringarfræði, matvælafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af eftirliti og opinberri stjórnsýslu æskileg

  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Skipulags- og samskiptahæfileikar

  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta


Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður Örn Hansson sigurdur.hansson@mast.is og Hafsteinn Jóh. Hannesson hafsteinn.hannesson@mast.is og í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “fæðubótarefni” eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 22. október. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.



Getum við bætt efni síðunnar?