Fara í efni

Samráðsþing MAST 2014

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun boðar til Samráðsþings miðvikudaginn 14. maí 2014 kl. 13:00 - 16:00 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura (Loftleiðum). Tilgangur samráðsþingsins er að styrkja samskipti Matvælastofnunar við eftirlitsþega og neytendur.

Þemað að þessu sinni verður hagsmunagæsla og opnun markaða og munu sjónarmið stofnunarinnar og ýmissa hagsmunahópa koma fram. Að loknum framsöguerindum hefjast pallborðsumræður þar sem fundargestum verður gefinn kostur á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig með nafni, nafni fyrirtækis/samtaka og netfangi á mast@mast.is fyrir 9. maí n.k.

Dagskrá þingsins má nálgast hér að neðan.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?