Fara í efni

Samið um eftirlit með lífrænni framleiðslu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Forstjóri Matvælastofnunar og framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns undirrituðu í dag samning um framsal eftirlits með lífrænni framleiðslu. Tún mun því áfram annast vottun og eftirlit með ræktun og framleiðslu lífrænna landbúnaðarafurða eins og hingað til.

Árið 2017 tók gildi hérlendis reglugerð Evrópusambandsins um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara. Með breytingu á lögum um lífræna landbúnaðarframleiðslu sem tóku gildi 1. janúar 2019 fer Matvælastofnun með stjórnsýslu og opinbert eftirlit á þessu sviði. Matvælastofnun hefur heimild til að framselja vottun og eftirlit til aðila með faggildingu.

Matvælastofnun auglýsti í október sl. eftir faggildum aðila til að sinna vottun og reglubundnu eftirliti með þeim sem sækja um eða hlotið hafa starfsleyfi til að framleiða, dreifa og markaðssetja lífrænt vottaðar afurðir. Ein umsókn barst stofnuninni. Hún var frá Vottunarstofunni Tún sem hefur annast eftirlitið frá árinu 1994.


Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunar og Gunnar Á. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Tún undirrita samning um framsal
eftirlits með lífrænni framleiðslu og merkingum

Í samningnum eru skilyrði og fyrirkomulag framsals skilgreind en ákveðnir þættir eru ekki framseldir og er þar helst að nefna veitingu undanþága frá reglum og eftirlit með störfum Vottunarstofunnar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?