Fara í efni

Salmonellumengaðir sláturhópar

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
  Matvælastofnun hafa borist tilkynningar frá Tilraunastöð háskólans í meinafræði á Keldum, um grun um salmonellumengaða sláturhópa. Um er að ræða 3 hópa frá tveimur framleiðendum. Týpugreining liggur ekki fyrir en óskað hefur verið eftir við fyrirtækin að þau innkalli vörur frá þessum sláturdögum, þar til týpugreining liggur fyrir. Jafnframt hefur Matvælastofnun óskað eftir dreifingarlistum og magntölum fyrir umrædda sláturhópa.
  

Framleiðandi

Sláturdagur

Rekjanleikanúmer

Afurðategund

Matfugl

8.4.2010

011 1009 3 34

Kjúklingur

Matfugl

8.4.2010

011 0909 9 86

Holdahænur

Ísfugl

9.4.2010

104 1003 1 08

Kjúklingur


Reynist týpugreining jákvæð verið afurðunum fargað eða þær hitameðhöndlaðar, þannig að kjarnhiti nái 72° C, áður en afurðunum verði dreift skv. reglugerð nr. 417/2002 um breytingu á reglugerð nr. 260/1980 um útbúnað alifuglasláturhúsa, slátrun alifugla, verkun þeirra og heilbrigðisskoðun.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?