Fara í efni

Sala beint frá býli er starfsleyfisskyld

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli á að sala beint frá býli er starfsleyfisskyld. Matvælalög kveða skýrt á um að hver sá sem dreifir matvælum skuli hafa leyfi yfirvalda til þess, annað hvort frá Matvælastofnun eða heilbrigðiseftirliti viðkomandi sveitarfélags.

Í ljósi mikillar aukningar á sölu matvæla beint frá býli hvetur Matvælastofnun alla þá bændur sem ekki hafa nú þegar gilt starfsleyfi og vilja selja beint frá býli að sækja án tafar um starfsleyfi til stofnunarinnar sé búfjárhald meginstarfsemi þeirra. Sé búfjárhald ekki meginstarfsemi þeirra þá sækja þeir um starfsleyfi til heilbrigðiseftirlits í héraði.

Tilgangur matvælalaga er að tryggja neytendum örugg matvæli eins og kostur er, í því skyni þarf hver sá sem dreifir matvælum að hafa gilt starfsleyfi yfirvalda. Í dreifingu matvæla felst hvers konar flutningur, framboð og afhending, þar með talið innflutningur, útflutningur og sala. Hér er einnig átt við geymslu og annað sem tengist dreifingu.

Umsóknum um starfsleyfi frá Matvælastofnun skal skilað inn rafrænt í þjónustugátt MAST á heimasíðu stofnunarinnar www.mast.is

Aðrir leiti upplýsinga hjá heilbrigðiseftirliti í sínu sveitarfélagi.


Getum við bætt efni síðunnar?