Fara í efni

Ríkið keypti og seldi mjólkurkvóta fyrir um 80 milljónir króna

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á þriðja innlausnardegi fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. september 2017 óskuðu 6 bú eftir að ríkið innleysti greiðslumark, samtals 497.974 lítra, og við bættust 74.978 lítrar frá fyrri innlausn. Alls voru því 572.952 lítrar til úthlutunar að upphæð 79.067.376 krónur. Gild kauptilboð á greiðslumarki voru frá 20 framleiðendum og var alls óskað eftir að kaupa 990.000 lítra að upphæð 136.620.000 krónur.

Matvælastofnunar annast innlausn greiðslumarks í samræmi við samning um starfsskilyrði í nautgriparækt sem tók gildi um síðustu áramót. Innlausn greiðslumarks fer fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert. Á árinu 2017 er innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 138 krónur fyrir hvern lítra mjólkur. Samkvæmt fyrrnefndum samningi ríkis við bændur skulu framleiðendur sem eru nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem Matvælastofnun innleysir á innlausnardegi. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna í samræmi við 10. gr. reglugerðar nr. 1150/2016 um stuðning við nautgriparækt. Potturinn skiptist hlutfallslega í samræmi við það magn sem óskað var eftir af framleiðendum í fyrrgreindum hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti.

Á innlausnardeginum 1. september var 143.238 lítrum úthlutað úr forgangspotti 1 (10% umframframleiðslupotti) en engin framleiðandi uppfyllti skilyrði um nýliðunarforgang að þessu sinni. Þá var 429.714  lítrum úthlutað úr almennum potti.  


Getum við bætt efni síðunnar?