Fara í efni

Reglur um útgáfu heilbrigðisvottorða með fiskafurðum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Þann 1. febrúar 2015 taka gildi nýjar reglur Matvælastofnunar um útgáfu heilbrigðisvottorða með sendingum af fiskafurðum til ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins. Með þessum reglum er verklag sett í fastari skorður, afgreiðslutími tilgreindur og framkvæmd eftirlits skilgreint. Tilgangur reglnanna er að auka skilvirkni útgáfunnar og tryggja samræmi við gildandi löggjöf og alþjóðareglur.
Meginreglur við vottorðaútgáfu:

  1. Heilbrigðisvottorð skulu að öllu jöfnu gefin út áður en sending fer frá Íslandi. Einungis er mögulegt að gefa út vottorð eftir að vara hefur yfirgefið landið ef til staðar er opinber hleðslustaðfesting fyrir viðkomandi sendingu, í því tilviki er tímafrestur þrír virkir dagar frá því sending yfirgefur landið. Útflytjendur skulu halda nákvæma hleðsluskrá (sbr. EBL-016) yfir allar sendingar og skal hún liggja fyrir hjá útflytjanda og vera aðgengileg Matvælastofnun (MAST).
  2. Eftirlit með hleðslu sendinga skal framkvæma í samræmi við eftirlitsáætlun MAST um útflutning fiskafurða (LBE-099), þar sem kemur fram tíðni og framkvæmd eftirlits. MAST gefur út eftirlitsáætlunina í byrjun árs með skipulagi um fjölda hleðslustaðfestinga sem útflytjendur eru ábyrgir fyrir að láta framkvæma vegna útgáfu vottorða með sendingum sínum.
  3. Opinbert eftirlit með sendingu skal framkvæmt af MAST áður en vottorð er gefið út. Fyrir hverja sendingu til skoðunar skal útflytjandi fylla út hleðslustaðfestingu og senda ásamt fylgigögnum (sjá EBL-016) til vottunar hjá MAST á utflutningur@mast.is.
  4. Umsækjandi heilbrigðisvottorðs fyllir út viðeigandi vottorð og sendir rafrænt til Inn- og útflutningsskrifstofu MAST. Afgreiðslutími heilbrigðisvottorða er á virkum dögum og skal vera a.m.k. 24 klst. Umsóknir sem berast fyrir hádegi kl. 8-12 verða afgreiddar kl. 8-12 daginn eftir. Umsóknir sem koma inn kl. 12-16 verða afgreiddar á tímabilinu kl. 13-16 daginn eftir. Styttri afgreiðslutími er mögulegur fyrir ferskar afurðir.
  5. Sendandi (Consignor) í heilbrigðisvottorði skal vera með kennitölu á Íslandi. Aðilar með kennitölu á Íslandi geti verið skráður sendandi í heilbrigðisvottorði fyrir hönd erlendra aðila.
  6. Umsækjandi fær afhent eitt frumrit af vottorði og eitt afrit. Eitt afrit er geymt hjá MAST. Hægt er að óska eftir fleiri afritum/skönnuðum afritumgegn sérstöku gjaldi.
  7. Yfirtökuvottorð (Supersede certificate) er gefið út gegn gjaldi ef breytingar óskast á útgefnu vottorði. 
  8. Tilbúin vottorð verða sett í móttöku á skrifstofu Inn- og útflutnings að Stórhöfða 23 í Reykjavík, þar sem hægt verður að nálgast þau eða fá þau send í almennum pósti skv. beiðni.
  9. Kostnaður vegna ofangreinds, þ.m.t. eftirlitmeð hleðslu sendingar og útgáfa vottorða greiðist af útflytjanda. 

Getum við bætt efni síðunnar?