Örverumengun í tófú
Frétt -
28.03.2012
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á vörunni Six fortune tófú með chilli vegna örverumengunar af völdum bakteríunnar, Bacillus cereus. Varan hefur verið innkölluð og er ekki lengur í dreifingu.
- Vörumerki: Six fortune.
- Vöruheiti: Tofu met chilli ingelegt.
- Nettóþyngd: 300g og 370 g.
- Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar.
- Umbúðir: Glerkrukkur.
- Dreifing: Verslun heildverslunarinnar Eir, Bíldshöfða 16, Mai Thai, Laugavegi 116 og Oriental Super Market, Faxafeni 14.
- Upprunaland: Tævan.
- Innflutt til Evrópu af: Heuschen & Schrouff Oriental Foods Trading B.V., Hollandi.Viðskiptavinir, sem keypt hafa vöruna, eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga.