Fara í efni

Opnað fyrir útflutning á kjöti til Hong Kong

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Útflutningur á íslensku svína-, kinda- og hrossakjöti til manneldis er nú heimill til Hong Kong að uppfylltum skilyrðum þarlendra yfirvalda.  Matvælastofnun hefur frá því árið 2011 unnið að því að ná samningum um heilbrigðiskröfur við yfirvöld í Hong Kong og tók meðal annars á móti sendinefnd þaðan haustið 2013 til úttektar á íslenskri kjötframleiðslu.

Heimilt er að flytja út allar kjötafurðir af ofangreindum dýrategundum að því tilskyldu að þær séu framleiddar í samþykktri starfsstöð.  Útflytjendur þurfa þannig ekki að vera skráðir á sérstaka lista yfir samþykkta útflytjendur.  Innflytjandinn í Hong Kong þarf aftur á móti að hafa skriflega heimild frá þarlendum yfirvöldum.  Kjötinu þarf að fylgja heilbrigðisvottorð, gefið út af Matvælastofnun (MAST).

Fyrstu sendingar sem berast frá Íslandi skulu að auki settar í svokallaða „hold and test“ meðferð við komuna til Hong Kong, sem felur í sér að rannsóknir verði gerðar á kjötinu til þess að tryggja að það uppfylli kröfur, sjá meðfylgjandi fylgiskjal.  Ef sendingarnar uppfylla kröfur og niðurstöður reynast fullnægjandi munu sýni ekki vera tekin framvegis nema sérstök ástæða þyki til eða sem þáttur í tilviljanakenndu eftirliti yfirvalda í Hong Kong.

Ítarefni



Getum við bætt efni síðunnar?