Fara í efni

Opnað fyrir skil á haustskýrslum 2019

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Opnað hefur verið fyrir skráningar haustskýrslna í Bústofni, www.bustofn.is. Í samræmi við lög um búfjárhald skulu umráðamenn búfjár árlega skila inn haustskýrslu fyrir 20. nóvember um búfjáreign, fóður og landstærðir.

Aðgangur að Bústofni fæst með rafrænum skilríkjum eða kennitölu og Íslykli.

Öllum hestaeigendum/umráðmönnum ber að skila haustskýrslu, skila skal upplýsingum um fjölda hrossa, staðsetningu þeirra og hver er skráður umráðmaður.

Hestaeigendum/umráðamönnum býðst nú takmarkaður aðgangur að WorldFeng með innskráningu í gegnum island.is, þar sem hægt er að ganga frá haustskýrslu með svokölluðum hjarðarbókaraðgangi, sjá nánar á www.worldfengur.com

Þeir sem ekki hafa tök á því að skila sjálfir í Bústofn stendur til boða þjónusta Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, fyrir þá þjónustu er innheimt samkvæmt gjaldskrá RML.

Ítarefni

This is a reminder that your autumn livestock report is now accessible on www.bustofn.is. Deadline for individuals to file their autumn report is November 20th 2019.


Getum við bætt efni síðunnar?