Fara í efni

Opinn streymisfundur um Mælaborð fiskeldis

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Mælaborð fiskeldis verður formlega opnað af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á streymisfundi á morgun, fimmtudaginn 15. apríl kl. 10. Í mælaborðinu eru birtar framleiðslutölur og rekstrarleyfi eldisfyrirtækja, ásamt staðsetningu eldissvæða og niðurstöðum eftirlits stofnunarinnar. Markmið birtingar er að auka gagnsæi fiskeldis og veita almenningi og hagsmunaaðilum hagnýtar upplýsingar um starfsemina.

Mælaborðið er unnið af Matvælastofnun í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Hægt er að fylgjast með fundinum í streymi hér:


Getum við bætt efni síðunnar?