Fara í efni

Uppfært: Opinn netfundur 6/2/23 - kínverska skráningarkerfið CIFER

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Uppfært 6/2: Hlekkur á fundinn í fréttinni að neðan er rangur og því komust færri á fundinn en höfðu áhuga. Við biðjumst innilega afsökunar á því. Þeim sem ekki komust á fundinn er boðið að hafa beint samband við  starfsmann inn- og útflutningsdeildar til þess að nálgast frekari upplýsingar.

Inn- og útflutningsdeild Matvælastofnunar stendur að öðrum opnum fundi á Teams næstkomandi mánudag, 6. febrúar 2023 kl. 13:00.
Á fundinum verður farið yfir helstu atriði kínverska skráningarkerfisins CIFER og feril umsókna: www.cifer.singlewindow.cn

CIFER er skráningarkerfi fyrir erlenda framleiðendur matvæla sem hyggjast selja afurðir sínar í Kína. Kerfið var tekið í notkun 1. janúar 2022.
Framleiðendur sem voru á samþykktarlista kínverskra yfirvalda fyrir þann tíma fengu sjálfkrafa skráningu inn í nýja kerfið. Sjá má lista yfir samþykkta framleiðendur hér.
Matvælastofnun hefur sent skráðum framleiðendum upplýsingar um notendanafn og aðgangsorð og sent nokkra upplýsingapósta en vill nú ítreka þörfina á að fyrirtæki uppfæri skráningar sínar.
Framleiðendur sem glatað hafa aðgangsupplýsingum sínum eða hafa lent í vandræðum með innskráningu er bent á að hafa samband við Inn-og útflutningsdeild MAST.

Fundurinn er fyrst og fremst ætlaður fyrir framleiðendur sem þegar eru samþykktir og þurfa að uppfæra og endurnýja skráningar sínar. Öðrum áhugasömum um að komast á kínverskan samþykktarlista er velkomið að fylgjast með. Fundurinn getur einnig nýst þeim, þar sem farið verður yfir viðmót kerfisins og góð ráð veitt.

Mjög mikilvægt er að allir framleiðendur sem vilja halda leyfi til útflutnings til Kína uppfæri skráningu sína. Almennur frestur til þess er til 30. júní 2023. Hafa ber í huga að uppfærslan krefst breytingarumsóknar sem kínversk yfirvöld þurfa að samþykkja og getur tekið þónokkurn tíma. Þess vegna mun MAST taka á móti umræddum umsóknum til 31. mars 2023.


Getum við bætt efni síðunnar?