Ómerktur ofnæmisvaldur í orkustykki
Frétt -
27.06.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar þá sem eru með eggjaofnæmi við neyslu á einni framleiðslulotu af Herbalife protein bar Vanilla-almond orkustykki vegna mistaka í pökkun. Önnur tegund af orkustykkjum sem inniheldur egg var pakkað fyrir mistök í framleiðsluferlinu. Herbalife hefur innkallað vöruna í 15 Evrópulöndum þ.m.t. Ísland og í Afríku.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Herbalife
- Vöruheiti: Herbalife protein bar Vanilla-almond (490g)
- Lotunúmer/best fyrir: G22166A og best fyrir 23/09/2023
- Dreifingaraðili: Herbalife international, Malta (tengiliður Íslands er í Írlandi)
- Dreifing: Lokað dreifingakerfi
Neytendum sem hafa eggjaofnæmi og sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki heldur farga. Dreifingaraðilar hjá Herbalife eiga ekki að neyta eða dreifa þessari framleiðslulotu af þessu orkustykkjum áfram.
Ítarefni
- Tilkynning frá Herbalife, Malta
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Leiðbeiningar Matvælastofnunar um merkingu á ofnæmis- og óþolsvöldum