Ómerktir ofnæmisvaldar og grunur um mengun frá plasti
Frétt -
08.03.2024
Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á tveimur fiskréttum frá fyrirtækinu FBO ehf. (Fiskbúðin okkar). Við eftirlit Matvælastofnunar kom í ljós að vörurnar innihalda ofnæmisvalda án þess að það komi fram á umbúðum. Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar.
- Þorskur í kókos karrý – inniheldur mjólk (laktósa), soja og sellerí
- Ýsa í humarsósu – inniheldur soja, sellerí og súlfít
Einnig höfðu borist kvartanir um óvenjulega lykt af vörunum sem grunur er um að megi rekja til notkunar á plasti í umbúðir sem ekki er ætlað til snertingar við matvæli.
- Innköllunin á við um allar lotur á markaði
- Vöruheiti: Þorskur í kókos karrý og Ýsa í humarsósu
- Framleiðandi: FBO ehf. (Fiskbúðin okkar), Eyjaslóð 7, 101 Reykjavík
- Dreifing: Bónus verslanir á höfuðborgarsvæðinu
Neytendur geta skilað vörunni til FBO ehf., Eyjaslóð 7, 101 Reykjavík eða til Bónusverslana gegn endurgjaldi.