Fara í efni

Ólöglegur innflutningur á búrfugli stöðvaður

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Um miðjan ágúst var lagt hald á búrfugl sem fluttur var ólöglega til landsins í bíl með Norrænu. Fuglinum var haldið í einangrun undir eftirliti Matvælastofnunar á Seyðisfirði þar til hann var sendur úr landi í síðustu viku.

Leyfi til innflutnings lá ekki fyrir og ekkert heilbrigðisvottorð fylgdi fuglinum. Innflutt gæludýr sem ekki uppfylla skilyrði vegna innflutnings skulu send úr landi eða aflífuð.

Innflytjendur búrfugla skulu afla innflutningsleyfis Matvælastofnunar og leggja fram heilbrigðisvottorð frá dýralækni fyrir innflutning. Þar að auki skulu búrfuglar dvelja í einangrun í fjórar vikur í aðstöðu sem samþykkt hefur verið af Matvælastofnun. Gæludýr sem hafa innflutningsleyfi Matvælastofnunar er einungis heimilt að flytja inn um Keflavíkurflugvöll. 


Getum við bætt efni síðunnar?