Fara í efni

Nýtt tilfelli riðu í Skagafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Um 1500 fjár eru á bænum, fullorðið fé og lömb.

Syðra-Skörðugil er í Húna- og Skagahólfi en í því hólfi greindist síðast riða á einum bæ árið 2020. Riðuveiki hefur komið upp á Syðra-Skörðugili einu sinni áður, fyrir 30 árum eða árið 1991.

Á síðasta ári greindist riða á 5 bæjum í austanverðum Skagafirði, sem tilheyra Tröllaskagahólfi. Sömuleiðis á einum bæ á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu.

Matvælastofnun vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga til að meta umfang smitsins og nauðsynlegar aðgerðir.

Aukin sýnataka er fyrirhuguð á Norðurlandi vestra nú í haust og mjög mikilvægt að bændur láti héraðsdýralækni vita af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma svo hægt sé að nálgast sýni úr þeim. Einnig er mikilvægt að fá sýni úr heimaslátrun.

Til mikils er að vinna að koma böndum á riðu á svæðinu og reyna að útrýma henni.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?