Fara í efni

Nýtt rekstrarleyfi Veiðifélags Ytri-Rangár til fiskeldis

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Veiðifélagi Ytri- Rangár rekstrarleyfi til fiskeldis á Húsafellslandi, Borgarbyggð. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 11. nóvember 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 3. desember 2021.

Veiðifélag Ytri-Rangár sótti um nýtt  rekstrarleyfi vegna 40 tonna hámarkslífmassa á seiðaeldi á laxi til stangveiða að Húsafellslandi, Borgarbyggð. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 8. desember 2020. Gildistaka rekstrarleyfis (FE-1169) verður staðfest þegar úttekt Matvælastofnunar hefur farið fram í starfsstöð félagsins. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?