Nýliðunarstuðningur í landbúnaði
Frétt -
24.04.2018
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Í samræmi við reglugerð um almennan stuðning við landbúnað nr. 1180/2017, IV. kafla skal umsóknum um nýliðunarstuðning í landbúnaði skilað inn rafrænt á Bændatorginu eigi síðar en 1. júní n.k.
Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.
Til að eiga rétt á nýliðunarstuðningi þarf að uppfylla kröfur skv. 16. gr. reglugerðarinnar og eru meðal annars:
- umsækjandi sé á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
- Er að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
Umsóknum er forgangsraðað með tilliti til menntunar, jafnréttissjónarmiða og heildarmats en nánari vinnureglur er að finna hér að neðan.
Stuðningur getur að hámarki numið 20% af heildarfjárfestingakostnaði á ári og skulu framlög til einstakra nýliða ekki vera hærri en níu milljónir króna í heildarstuðning.