Fara í efni

Noroveirur í hindberjum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

  Sýkingar af völdum noroveira sem rekja má til innfluttra frosinna hindberja hafa komið upp í Finnlandi og Svíþjóð í haust.  Talið er að rekja megi smitið til vökvunar með menguðu vatni.  Sænska og finnska matvælastofnunin hafa ráðlagt stóreldhúsum, veitingastöðum og neytendum að hita innflutt frosin ber ef nota á þau í eftirrétti og ávaxtadrykki.  Ekki er vitað um noroveirusýkingar hérlendis sem má rekja til hindberja.  
 
Matvælastofnun bendir neytendum á, að hitun á frosnum innfluttum hindberjum er fyrirbyggjandi  til að forðast sýkingar af völdum noroveira. Hitun í 2 mínútur við 90 °C  minnkar hættu á sýkingu.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?