Fara í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. september 2015  skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 200 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 24 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 9 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 15
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 367.368 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 950.000 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 367.368 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 90.71 % 
Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. september 2015. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 200 kr./l. 

kvótamarkaður mjólkur
Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur línanna reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði  né jafnvægismagni.

 
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  200,-  kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. apríl 2015 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 107,1 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 155,7 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
  • að verð á greiðslumarki nú er 50 krónum hærra en það var á markaði þann 1. apríl 2015

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?