Fara í efni

Nautgripir teknir úr vörslu eiganda

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur svipt bónda á Norðurlandi nautgripum sínum vegna óviðunandi aðbúnaðar og umhirðu. Lagt var hald á 215 nautgripi, 45 voru fluttir í sláturhús, en 170 verða í vörslu Matvælastofnunar á bænum að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Veittur hefur verið skammur frestur til að uppfylla kröfur stofnunarinnar um úrbætur.

Matvælastofnun hefur haft afskipti af býli undanfarin misseri vegna ófullnægjandi aðbúnaðar og umhirðu naugripa. Gripunum hefur ekki verið tryggður fullnægjandi aðgangur að drykkjarhæfu vatni og fóðri spillt með ágangi gripa og óhreinindum í fóðurgangi. Þéttleiki í smákálfastíum hefur verið of mikill og laus naut haldin innan um bundnar kýr. Eigin eftirliti hefur verið ábótavant, m.a. hefur slösuðum gripum ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti eða leitað lækninga og hefur þurft að aflífa gripi af þeim sökum. Einnig hefur lögbundnum skráningum verið ábótavant. Um endurtekin brot er að ræða án þess að kröfur stofnunarinnar um úrbætur væru virtar. Lög um velferð dýra veita Matvælastofnun heimild til að framkvæma vörslusviptingu á dýrum þegar eigendur þeirra fylgja ekki reglum um velferð dýra og virða ekki tilgreinda fresti sem þeim eru gefnir til úrbóta.

Á haustmánuðum voru lagðar dagsektir á ábúendur til að knýja fram úrbætur á frávikum vegna dýravelferðarmála á bænum. Fullnægjandi úrbætur hafa hins vegar ekki verið gerðar. 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?