Námskeið um stofnun matvælafyrirtækja
Matvælaskólinn hjá Sýni heldur námskeið um stofnun matvælafyrirtækja dagana 25. og 26. febrúar og 11. og 12. mars, alls 40 kennslustundir.
Námskeiðinu er ætlað að svara hinum ýmsu spurningum varðandi kröfur sem
gerðar eru til matvælafyrirtækja bæði hvað varðar gæði, öryggi og
hollustu matvæla svo og húsnæði og búnað.
Námskeiðið er
ætlað sprotafyrirtækjum, einstaklingum sem eru í leit að nýjum leiðum,
matvælaframleiðendum í héraði, ferðamannaþjónustu og öðrum sem hafa
áhuga á matvæla-framleiðslu.
- Lagalegum kröfum við stofnun matvælafyrirtækis
- Gæðamálum, innra eftirliti og úttektum
- Öryggi matvæla og hreinlæti
- Húsnæði, innréttingum og þrifavænlegri hönnun
- Vöru-og hráefnaþekkingu og innkaupum
- Pökkunaraðferðum, vali á umbúðum og umbúðamerkingum
- Vinnuvernd og vellíðan á vinnustöðum
- Umhverfi matvælafyrirtækja og samtök fyrirtækja
- Styrkumsóknum t.d. vegna vöruþróunar
Nánari upplýsingar á heimasíðu Matvælaskólans hjá Sýni, www.syni.is eða í síma 512-3380.