Fara í efni

Mygla í heslihnetum og gerjun í vítamíndrykk

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um sölustöðvun og innköllun á tveimur tegundum matvæla í júní (18.6 og 22.6) vegna annars vegar myglu í heslihnetum og hins vegar gerjunar í fjölvítamíndrykk. Innköllunin einskorðast við eftirfarandi framleiðslulotur og hefur Kaupás innkallað loturnar af markaði.

  • Vörumerki: First Price 
  • Vöruheiti: First Price Heslihnetukjarnar 
  • Strikanúmer: 7311041073483 
  • Nettó þyngd: 200 gr 
  • Best fyrir: 08.09.2015 
  • Framleiðandi: CALDIC SWEDEN AB 
  • Framleiðsluland: Svíþjóð 
  • Auðkenni/skýringartexti: Tilkynning frá danska matvælaeftirlitinu /mygla
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar og Nóatún í Austurveri
  • Laga- /reglugerðarákvæði: a)- og c) liðir 8. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. 
  • Vörumerki: Yippy
  • Vöruheiti: Yippy fjölvítam.drykkur ferna
  • Umbúðir: Ferna 
  • Strikanúmer: 9008700141758
  • Nettó magn: 200 ml
  • Best fyrir: 25.07.2015 Framleiðslulota: L9B5
  • Framleiðandi: Rauch
  • Framleiðsluland: Austurríki
  • Auðkenni/skýringartexti: Neytandi kvartaði/gerjun
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar Kjarvals og Nóatúns um land allt.
  • Laga-/reglugerðarákvæði: a)- og c) liðir 8. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. 

Viðskiptavinum sem hafa keypt vörurnar í framangreindum verslunum er bent á að skila henni í viðkomandi verslun. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björk Geirsdóttir deildarstjóri hjá Kaupási í síma 559 3000.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?