Fara í efni

Meðhöndlun matvæla í eldhúsinu um jólin

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Mikið álag er á eldhúsum landsmanna við jólaundirbúning í desember og yfir hátíðirnar. Hreinlæti, kæling og rétt hitun matvæla er afar mikilvæg svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum.

Sjúkdómsvaldandi bakteríur geta borist inn í eldhúsið með kjöti og jarðvegi sem fylgir grænmeti og borist þaðan í önnur matvæli á eldhúsborðinu eða í ísskápnum. Einnig geta þær borist í matvæli frá þeim sem meðhöndlar matvælin og frá þeim búnaði og áhöldum sem eru notuð í eldhúsinu. Það er því mikilvægt að koma í veg fyrir að:

  • Hrátt kjöt og safi úr hráu kjöti komist í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu með því að tryggja aðskilnað á eldhúsborðinu og í ískápnum
  • Bakteríur sem geta verið á grænmeti og ávöxtum berist í tilbúin matvæli með því að þvo grænmeti og ávexti fyrir notkun
  • Bakteríur og veirur berist í matvæli frá höndum með því að þvo hendur áður en hafist handa við matreiðslu og eftir snertingu við hrátt kjöt og óþvegið grænmeti 
  • Skurðarbretti og áhöld geti mengað matvæli með því að þvo skurðarbretti og áhöld strax eftir notkun eða nota jafnvel sérstök skurðarbretti fyrir kjöt, grænmeti og tilbúin matvæli
  • Krossmengun verði í ísskápnum. Það gerist með góðu skipulagi og með því að halda honum hreinum 
  • Bakteríur fjölgi sér í borðtuskum, viskustykkjum og handþurrkum með því að skipta reglulega um 

Bakteríur fjölga sér mjög hratt við kjöraðstæður. Við 37°C getur ein baktería fjölgað sér í 1000 á 3 tímum og í 1 milljón á 6 tímum.  Það er því mikilvægt að geyma og meðhöndla matvæli við það hitastig að komið verði í veg fyrir hraða fjölgun baktería. Mest hætta er á fjölgun baktería þegar hitastig matvælanna er milli 5 og 60°C.  Nægileg hitameðhöndlun drepur bakteríur og geymsla við kælihitastig (0-4°C)  takmarkar fjölgun þeirra. Ef halda á matvælum heitum skal þeim haldið við 60°C og við kælingu hitaðra matvæla skal gæta þess að þau nái 4°C á 3 tímum. 

Landsmenn eru hvattir til að tileinka sér hreinlæti, rétta meðhöndlun og kælingu matvæla í eldhúsinu svo koma megi í veg fyrir að matarbornir sjúkdómar spilli jólagleðinni.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?