Fara í efni

Matvælastofnun óskar eftir rannsókn lögreglu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu vegna atviks þar sem veist var að starfsmanni stofnunarinnar þegar hann var að sinna eftirliti.

 Þetta er í þriðja sinn á sl. þremur árum þar sem máli er vísað til lögreglu vegna þess að veist er að eftirlitsmanni stofnunarinnar við störf hans.   Í 106. gr. almennra hegningarlaga  segir að hver sá sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfs skal sæta fangelsi allt að 6 árum. Jafnframt segir að beita megi sektum ef brot er smáfellt.

 Allt ofbeldi eða hótanir um ofbeldi í garð starfsmanna Matvælastofnunar verður kært til lögreglu. 

 


Getum við bætt efni síðunnar?