Fara í efni

Matvælastofnun lokar Eyjafirði til skelfisksuppskeru

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Lömunareitrun PSP hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði. Í sýnum sem nýlega voru tekin til þörungaeitursgreiningar reyndist magn PSP vera rétt undir viðmiðunarmörkum en magnAlexandrium þörunga sem valda eitruninni yfir hættumörkum. Matvælastofnun varar því við sterklega við neyslu og tínslu á kræklingi og öðrum skelfiski úr Eyjafirði.


Þörungaeitursgreining sem framkvæmd var þann 9.6 sýndi magn PSP rétt undir viðmiðunarmörkum eða 72µg/kg en mörkin eru 80µg/kg. Á sama tíma greindust þörungar af tegundinni Alexandrium en þeir valda PSP eitrun.  Skv. talningu var fjöldinn  620 frumur/lítra en hættumörk eru 500 frumur/lítra. Sýni var tekið 14.6 og var þá fjöldi Alexandrium tegunda kominn í 1000 frumur/lítra.

Áhrif PSP-eitrunar ("Paralytic Shellfish Poisoning") á spendýr eru í því fólgin að eitrið truflar natríumbúskap taugafruma, sem leiðir af sér truflun á taugaboðum og getur valdið lömun, öndunarerfiðleikum og jafnvel dauða. Þessi gerð þörungaeitrunar hverfur úr skelfiskinum á skömmum tíma eftir að þörungar hafa horfið af hafsvæðinu.

Fylgst verður á næstunni með þróun mála.  Varað er við neyslu á skelfisk þar til sýnt hefur verið fram á að PSP eitur sé undir viðmiðunarmörkum í kræklingi.  


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?