Fara í efni

Matvælastofnun fylgist með innflutningi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun fylgist með tilkynningum um vörur sem sagðar eru innihalda nautakjöt en innhalda hrossakjöt í mismiklu magni. Tilkynningar um slík vörusvik berast Matvælastofnun í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður (RASFF) og frá erlendum systurstofnunum. Þegar tilkynningar berast kannar Matvælastofnun hvort tilkynntar vörur hafi verið fluttar til landsins og upplýsir heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga sem fylgir eftir að seljendur vörunnar uppfylli skyldu sína að innkalla vöruna.

Víðtækar innkallanir standa nú yfir í Evrópu vegna vörusvika þar sem vörur er sagðar innihalda nautakjöt á umbúðum en innihalda þess í stað hrossakjöt að hluta eða eingöngu. Þegar slík vörusvik uppgötvast sendir viðkomandi eftirlitsstofnun viðvörun inn í hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður (RASFF) sem áframsendir viðvörunina á matvælastofnanir um alla Evrópu, þar á meðal Matvælastofnun. Markmið hraðviðvörunarkerfisins er að skapa hraðvirkt og gagnvirkt tól fyrir eftirlitsstofnanir til að miðla upplýsingum og bregðast hratt við þegar matvæli standast ekki kröfur.

Þegar tilkynningar berast um matvæli sem standast ekki kröfur kannar Matvælastofnun hvort vörurnar hafa verið fluttar til Íslands og upplýsir heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, sem framkvæmir markaðseftirlit hérlendis og er varan innkölluð í kjölfarið. Fjöldi tilkynninga hefur borist Matvælastofnun um vörur á markaði í Evrópu sem ranglega eru sagðar innihalda eingöngu nautakjöt og hefur komið í ljós að sumar þeirra hafa verið fluttar til landsins. Tvær vörur hafa þegar verið innkallaðar.

Matvælastofnun lítur málið alvarlegum augum og mun birta reglulega upplýsingar á vef stofnunarinnar
til neytenda ef innkalla þarf fleiri vörur af markaði. Árið 2010 framkvæmdi Matís rannsókn fyrir Neytendasamtökin og Landsamband kúabænda um gæðakönnun á nautahakki í íslenskum verslunum. Niðurstöður rannsóknarinnar má sjá hér að neðan.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?