Fara í efni

Mál Hvals hf. áfram til meðferðar Matvælastofnunar

Matvælastofnun hefur afhent þeim fjölmiðlum sem þess óskuðu, gögn vegna ákvörðunar stofnunarinnar um tímabundna stöðvun veiða Hvals 8. Starfsmenn Matvælastofnunar og Fiskistofu fóru í vettfangsferð í Hvalfjörð þann 18. september þar sem veiðibúnaður var tekinn út og fylgst var með og tímamæld endurhleðsla skutla, auk þess sem fylgst var með að skotið væri í mark frá Hval 8. Sérfræðingar Matvælastofnunar rýna nú úrbætur fyrirtækisins og svör við frekari spurningum stofnunarinnar er vörðuðu þau atriði sem fóru úrskeiðis við veiðar á langreyði sem var veidd 7. september síðastliðinn. Þegar Matvælastofnun hefur lokið rýni verður tekin ákvörðun um hvort tímabundinni stöðvun á veiðum Hvals 8 verði aflétt og þá með eða án takmarkana.


Getum við bætt efni síðunnar?