Fara í efni

Má hafa jólasteikina með til útlanda?

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Íslendingar sem eru á faraldsfæti yfir hátíðirnar hyggjast margir hafa meðferðis kjöt fyrir vini og vandamenn erlendis. Mikilvægt er að kynna sér vel reglur um slíkan flutning á dýraafurðum á milli landa. Óleyfileg matvæli eru tekin af ferðamönnum við tollskoðun og slíkt getur varðað sektum.

Evrópska efnahagssvæðið

Heimilt er að hafa meðferðis í farangri allt að 10 kg af kjöti (dýraafurðum) frá Íslandi til landa innan Evrópska efnahagssvæðisins til einkaneyslu. Upprunamerking kemur fram á pakkningum og ekki er þörf á sérstöku vottorði.

Bandaríkin

Heimilt er að hafa meðferðis í farangri allt að 22,6 kg (50 pund) af lambakjöti frá Íslandi til Bandaríkjanna til einkaneyslu. Upprunamerking kemur fram á pakkningum og ekki er þörf á sérstöku vottorði.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?