Fara í efni

Listi yfir þá sem fengið hafa leyfi til sölu á líflömbum og kiðum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Samkvæmt reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða skulu þeir sem hyggjast selja líflömb sækja um það til Matvælastofnunar. Stofnunin hefur nú farið yfir þessar umsóknir og veitt þeim umsækjendum sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar leyfi til að selja líflömb og/eða kið. 

Listi yfir þá sem fengið hafa leyfi til sölu á líflömbum og kiðum

er að finna hér.

Þeir sem hyggjast kaupa líflömb skulu sækja um það til Matvælastofnunar fyrir 15. ágúst á sérstökum eyðublöðum, sem eru að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Matvælastofnun veitir leyfi fyrir 30. ágúst eða hafnar umsókninni ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði reglugerðarinnar.


Einnig er hægt að sækja um að kaupa hrúta á Hrútadegi á Raufarhöfn.


Þeir sem hyggjast sækja um eru hvattir til að kynna sér reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða.


Sjá nánar um varnarhólf hér.


Nánari upplýsingar veita: Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir; Auður Lilja Arnþórsdóttir, sóttvarnadýralæknir; Dagbjört Rúnarsdóttir, ritari; Viktor Pálsson, lögfræðingur; í síma 530 4800.



Getum við bætt efni síðunnar?