Fara í efni

Listería í taðreyktum silungi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Fyrirtækið Reykhúsið Útey ehf. hefur tilkynnt um að það hafi ákveðið að innkalla af markaði Taðreyktan silung vegna bakteríunnar Listeria monocytogenes, sem greindist yfir viðmiðunarmörkum við lok líftíma vörunnar. Innköllunin nær til dagsetningarinnar „Síðasti neysludagur 10.11.2011“ og á varan því ekki að vera á markaði lengur. Neytendur sem hafa í fórum sínum, í kæli eða frysti, pakkningar með ofangreindri dagsetningu eru beðnir að neyta ekki vörunnar. Hægt er að skila vörunni með því að hafa samband við Reykhúsið Útey í síma 896 2684. Umrædd vara hefur jafnframt verið tekin af markaði.
 
Listeria monocytogenes getur valdið matarsýkingum hjá áhættuhópum en það eru barnshafandi konur og einstaklingar með skert ónæmiskerfi.
 
Frekari upplýsingar veitir Heilbrigðiseftirlit Suðulands í síma 480 8220 eða í gegnum netfangið
hs@sudurland.is.

Ítarefni

    Listi yfir innkallanir á matvælum



Getum við bætt efni síðunnar?