Fara í efni

Listería finnst í graflaxi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á Úrvals graflaxi frá Eðalfiski ehf. vegna listeríu sem fannst í vörum með síðasta notkunardegi á tímabilinu 13.3.2022-11.4.2022.  Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar í varúðarskyni af markaði og sent út fréttatilkynningu.

Innköllunin á við eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vöruheiti: Úrvals grafnar sneiðar, Úrvals grafinn lax (bitar), Úrvals grafinn lax (flök)
  • Framleiðandi: Eðalfiskur ehf, Vallarási 7-9, 310 Borgarnesi
  • Lotunúmer: IB22038041046, IB22038041049 og IB22038042048
  • Siðasti notkunardagur: 13.3.2022-11.4.2022
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar, Fjarðarkaup og í Kolaportinu.  

 

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn,  aldraðir og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.

    

Neytendum sem keypt hafa vörurnar er bent á að neyta þeirra ekki og nánari upplýsingar eru veittar af fyrirtækinu í síma 437-1680 og í tölvupóstfanginu edalfiskur@edalfiskur.is

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?