Fara í efni

Laus störf hjá Matvælastofnun

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun kallar eftir umsóknum í starf eftirlitsdýralæknis í Skagafjarðar- og Eyjafjarðarumdæmi og í tímabundið starf eftirlitsdýralæknis í Suðurlandsumdæmi. Jafnframt óskar stofnunin eftir dýralæknum í sumarafleysingar og í sauðfjárslátrun í haust. Umsóknarfrestur er til 26. maí n.k.

Eftirlitsdýralæknir í Skaga- og Eyjafjarðarumdæmi


Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni í 100% starf á umdæmisskrifstofu stofnunarinnar á Akureyri.

Helstu verkefni:


  • Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
  • Eftirlitsstörf  á sviði dýraverndar og dýravelferðar
  • Samskipti við aðrar stofnanir
  • Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin


Menntunar- og hæfniskröfur:


  • Dýralæknismenntun
  • Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta


Eftirlitsdýralæknir í Suðurlandsumdæmi

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni tímabundið á umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Suðurlandi. Um er að ræða tímabilið frá 15. júní 2010 til 31. október 2011.

Helstu verkefni:


  • Eftirlitsstörf  á sviði dýraverndar og dýravelferðar
  • Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
  • Samskipti við aðrar stofnanir
  • Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin


Menntunar- og hæfniskröfur:


  • Dýralæknismenntun
  • Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta


Dýralæknar – sumarafleysingar

Matvælastofnun óskar eftir að ráða dýralækna tímabundið í afleysingar næstkomandi sumar fyrir eftirtalda héraðsdýralæknisumdæmi:


  • Héraðsdýralæknirinn í Vestfjarðaumdæmi, u.þ.b. sex vikur í júlí - ágúst
  • Héraðsdýralæknirinn í Þingeyjarumdæmi, u.þ.b. sex vikur í júní - ágúst
  • Vesturland, 19. júlí – 13. ágúst


Dýralæknar – sauðfjárslátrun

Matvælastofnun óskar eftir að ráða dýralækna tímabundið í heilbrigðiseftirlit við sauðfjárslátrun (kjötskoðun) næstkomandi haust á eftirtöldum stöðum:


  • Sláturhús SS á Selfossi u.þ.b. þrír mánuðir, september - nóvember
  • Sláturhús KAH á Hvammstanga, tveir mánuðir, september - október
  • Sláturhús SAH afurða á Blönduósi, tveir mánuðir, september - október
  • Sláturhús KS á Sauðárkróki, tveir mánuðir, september - október (tvær stöður)
  • Sláturhús Norðlenska á Húsavík, u.þ.b. sex vikur, september - október
  • Sláturhús Fjallalambs á Kópaskeri, u.þ.b. sex vikur, september - október


Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Jóh. Hannesson hjá Matvælastofnun, í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum með stöðunni sem sótt er um, eða með tölvupósti á mast@mast.is.  Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2010. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.


Getum við bætt efni síðunnar?