Fara í efni

Lakkrís innkallaður vegna aðskotarhlutar (plastbiti)

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Lakkrís innkallaður vegna aðskotarhlutar (plastbiti).

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun frá heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík. Fyrirtækið Kólus hefur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlitið, innkallað Gammeldags Lakrids í 350 g umbúðum vegna þess að brot úr hörðu plasti fannst í einum pokanum. Einungis er um að ræða innköllun á einni framleiðslulotu.

Nánar um vöru:

Vöruheiti: Gammeldags Lakrids

Strikanúmer: 5690657000369

Nettómagn: 350g

Best fyrir: 01.05.18

Lotunúmer: L 305

Framleiðandi: Kólus ehf, Tunguhálsi 5, 110 Reykjavík

Dreifing: Sölustaðir um allt land.

Neytendur sem keypt hafa Gammeldags Lakrids með framangreindum dagsetningum mega skila honum þangað sem hann var keyptur eða til Kólus, Tunguhálsi 5. Nánari upplýsingar fást hjá Jóni í síma 535 0300.

Ítarefni:

Fréttatilkynning frá heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík

Mynd af vöru

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um innkallanir


Getum við bætt efni síðunnar?